Episode Details
Back to EpisodesSprengisandur 18.10.2026 - Viðtöl þáttarins
Description
Páll Magnússon stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin.
Í þessum þætti:
Almar Guðmundsson, nýkjörinn formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og bæjrstjóri í Garðabæ, og Eyjólfur Ármannsson, ráðherra sveitarstjórnamála ræða um samskipti ríkis og sveitarfélaga sem ýmsir telja í hálfgerðum ólestri.
Vikan var tíðindasöm í pólitíkinni – ekki síst hjá Viðreisn þar sem fækkaði um einn í þingflokknum þegar Jón Gnarr stökk fyrir borð. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar í ítarlegu viðtali.
Fjallað um ástand mála í grunnskólum landsins. Sigvaldi Egill Lárusson, formaður Heimilis og skóla, hélt því fram í nýlegri grein að kjarabarátta kennara kæmi beinlínis niður á menntun barnanna okkar, ekki síst með styttingu skólaárs og fækkun kennsludaga. Sigvaldi verður hér á eftir ásamt Magnúsi Þór Jónssyni, formanni Kennarasambands Íslands.
Dr. Herdís Kjerulf Þorgeirsdóttir, lögmaður, sem starfar á sviði mannréttinda og stjórnskipunar. Hún skrifaði athyglisverðan pistil um helgina þar sem hún benti m.a. á að enski auðkýfingurinn Jim Ratcliffe eigi orðið hátt í helming af byggilegu landi í Norðausturkjördæmi – og sé orðinn fjórði stærsti landeigandinn á Íslandi - á eftir ríkissjóði, sveitarfélögum og þjóðkirkjunni.