Episode Details
Back to EpisodesSprengisandur 11.10.2026 - Viðtöl þáttarins
Description
Páll Magnússon stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin.
Í þessum þætti:
Fyrst af öllum kemur þó til mín Unnur Brá Konráðsdóttir, sveitarstjóri í Borgarbyggð, sem í fyrradag kærði Menntamálaráðuneytið og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu fyrir að neita að veita henni upplýsingar úr PISA könnunum - sem að gagni mættu koma til að bæta skólastarfið í sveitarfélaginu.
Það eru engar ýkjur að segja að það logi allt stafnana á milli í deilum í verkalýðshreyfingunni eftir atburðarásina og samningana núna í vikunni. Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins.
Formenn þingflokka Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins, Guðmundur Ari Sigurjónsson (sem reyndar var líka kjörinn varaformaður Samfylkingarinnar í gær) og Ólafur Adolfsson, verða hérna á eftir og takast á um pólitíkina og það sem er framundan í þeim efnum.
Rósa Magnúsdóttir, prófessor í stjórnmálasögu, skrifaði nýja bók um þennan sögufræga fund, sem kom út núna í vikunni.
Halla Gunnarsdóttir, formaður VR um deilur innan verkalýðshreyfingarinnar eftir atburðarrásina og samningana í vikunni.