Episode Details

Back to Episodes

Sprengisandur 04.10.2026 - Viðtöl þáttarins

Episode 2146 Published 3 weeks ago
Description

Páll Magnússon stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin.

Í þessum þætti:

María Rut Kristinsdóttir frá Viðreisn og Snorri Másson frá Miðflokki ræða það sem er efst á baugi í pólitíkinn þessa dagana

Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins segir okkur frá nýstárlegum útreikningum sem hún lét gera á áhrifum fjárlagafrumvarpsins á afkomu venjulegrar fjölskyldu

Ásdís Kristjánsdóttir í Kópavogi og Íris Róbertsdóttir í Vestmannaeyjum. Þær hafa báðar brugðist við stöðugt hrakandi árangri grunnskólabarna – sem m.a. birtist síendurtekið í PISA-könnunum – í stað þess að bíða bara eftir ríkisvaldinu. Í Vestmannaeyjum var riðið á vaðið með verkefnið Kveikjum neistann og Lindaskóli í Kópavogi fylgdi í kjölfarið

Valgerður Rúnarsdóttir, fyrrverandi – og a.m.k. tímabundið - líka núverandi yfirlæknir á Vogi. Við ræðum það ófremdarástand sem ríkt hefur í starfsemi SÁÁ síðustu tvo mánuðina, eða svo

Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us