Episode Details
Back to Episodes
Rauða borðið 15. sept - Flugvirkjar, Trump, baktal, sundrung og hrakvæðing
Episode 1422
Published 2 weeks, 6 days ago
Description
Þriðjudagur 15. september
Flugvirkjar, Trump, baktal, sundrung og hrakvæðing
Flugvirkjar hafa boðað verkfall og mikið ber á milli þeirra og Icelandair. Óskar Einarsson formaður Flugvirkjafélags Íslands skýrir stöðuna fyrir Gunnari Smára. Brynja Elísabeth Halldórsdóttir dósent við menntavísindasvið, Magnús Helgason sagnfræðingur og Bjarni Randver Sigurvinsson trúarbragða- og guðfræðingur ræða við Gunnar Smára um áhrif Trump á samfélagið og heiminn. Baktal er hreinlega líkamlega skaðlegt, líkt og um útskúfun sé að ræða segir Lára G. Sigurðardóttir læknir og nemi í taugavísindum í samtali við Ásdísi Olsen. Jón Kaldal blaðamaður ræðir sundrungu innanlands og utan og hvernig öfl róa að því að tvístra fólki. Hann varar við málflutningi sem ætlað er að skapa gjá milli landsbyggðanna og höfuðborgarsvæðisins. Björn Þorláks ræðir við hann. Breki Karlsson ræðir illa þokkuð gjöld og hvort dómur sem féll í Noregi gæti orðið íslenskum neytendum búbót. Svokallaða hrakvæðingu ber einnig á góma. Hvað er það? Björn Þorláks ræðir við Breka.