Episode Details
Back to Episodes
Rauða borðið 14. sept - Laxeldishneyksli, skólinn og PISA, Ísland Trumps og jóga
Episode 1421
Published 3 weeks ago
Description
Mánudagur 14. september
Laxeldishneyksli, skólinn og PISA, Ísland Trumps og jóga
Jódís Skúladóttir fyrrum þingmaður og sveitarstjórnarfulltrúi á Austurlandi gagnrýnir suma fyrrverandi félaga í VG harðlega í tengslum við áform um laxeldi á Seyðisfirði. Björn Þorláks ræðir við Jódísi. Anna Kristín Sigurðardóttir prófessor á menntavísindasviði ræðir við Gunnar Smára um stöðuna á grunnskólanum í ljósi PISA. Stjórnskipuleg, söguleg, þjóðréttarleg og leikjafræðileg álitamál verða til umfjöllunar vegna áhuga Trump á að Ísland verði eitt af fylkjum Bandaríkjanna. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir við Björn Þorláks. Skúli Sigurðsson jógakennari er giftur inn í eina merkilegustu jógafjölskyldu heims. Eiginkona Skúla, dr. Kamini Desai, er merkilegur frumkvöðull sem starfar víða um heim og hefur kennt hundruðum Íslendinga Yoga Nidra. Skúli segir frá einstakri ástarsögu þeirra Kamini í samtali við Ásdísi Olsen.