Episode Details

Back to Episodes

Sprengisandur 13.09.2026 - Viðtöl þáttarins

Episode 2112 Published 1 month, 1 week ago
Description

Páll Magnússon stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin.

Í þessum þætti:

Ítarlegt viðtal við Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra, um stjórnmálaástandið núna þegar ríkisstjórnin er að verða hálfnuð með starfstíma sinn.

Alþingismennirnir Guðlaugur Þór Þórðarson og Sigurjón Þórðarson takast á um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar; og svo – það sem er kannski mikilvægast af þessu öllu: erum við að bregðast börnunum okkar? 

Ásgeir Jónsson, Seðlabankastjóri, í ítarlegu viðtali. Það er ekkert annað land í okkar heimshluta með verðtryggingarkerfi eins og það er á Íslandi. Líklega hvergi í heiminum. Af hverju erum við ein búin að vera að þvælast með þetta í nærri hálfa öld?

Nærri helmingur íslenskra barna lýkur grunnskólanámi án þess að geta lesið sér til gagns. Freyja Hreinsdóttir, forseti Menntavísindasviðs HÍ, og Bryndís Haraldsdóttir, alþingismaður, ræða málið.

Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us