Episode Details

Back to Episodes

Kastljósið beinist að Íslandi og krísu Evrópusambandsins

Episode 731 Published 3 weeks, 1 day ago
Description
,,Skilaboðin frá Íslandi”; ,,Þetta er synd fyrir Evrópu”; ,,Sterk tengsl Íslands við Evrópusamband fela í sér að niðurstaðan er ekki sambærileg við Brexit” eru nokkrar af þeim fyrirsögnum sem birst hafa í dagblöðum í Evrópu um þjóðaratkvæðagreiðsluna á Íslandi á laugardaginn. Ísland, og fréttir frá Íslandi, eru ekki til umfjöllunar í erlendum fjölmiðlum á hverjum degi. Síðustu daga hefur þetta hins vegar verið raunin. Líklega þarf að fara aftur til ársins 2016 til að finna sambærilegt umfang af fréttum í erlendum miðlum um eitt mál sem tengist Íslandi og síðustu daga. Þetta var þegar íslenska landsliðið lagði enska landsliðið í Evrópukeppninni í fótbolta og eins var talsverð umfjöllun um Ísland erlendis út af Panamaskjölunum svokölluðu skömmu áður. Túlkanir og greiningar á niðurstöðunni hafa verið allt frá því að Íslendingar hafi hafnað Evrópu og yfir í það að Ísland sé alls ekki að gera það þar sem landið sé þegar í djúpri samvinnu við Evrópusambandið í gegnum EES-samninginn og Schengen. Rætt er við hagfræðinginn og ritstjórann Ásgeir Brynjar Torfason og alþjóðastjórnmálafræðinginn Guðbjörgu Ríkeyju Thoroddsen um viðbrögðin í erlendum fjölmiðlum við niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us