Episode Details
Back to EpisodesSýn hættir með kvöldfréttir eftir að ekkert varð af viðskiptum við Símann
Episode 729
Published 3 weeks, 4 days ago
Description
Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, segir að sú ákvörðun stjórnenda Sýnar að hætta með sjónvarpsfréttir sé gríðarleg vonbrigði.
Sýn greindi frá þessu í tilkynningu til Kauphallar Íslands núna í morgun. Síðasti kvöldfréttatími Sýnar verður í kvöld. Með þessu lýkur 40 ára samfelldri sögu kvöldfrétta á Sýn og fyrrirennara Sýnar, Stöðvar 2. Fyrsti fréttatíminn á Stöð 2 var sendur út þann 9. október árið 1986.
Fjallað er um þessa ákvörðun og hún sett í samhengi við þá ákvörðun að Sýn seldi ekki stóran hluta af fjölmiðlum sínum til Símans fyrir 5,25 milljarða króna líkt og til stóð. Sýn skilaði árshlutauppgjöri í síðustu viku sem Björn Steinar Birgisson greinandi ræðir um.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson