Episode Details

Back to Episodes

Hvernig verður öldrunarþjónusta framtíðarinnar - hvað þurfum við að gera og hvernig viljum við eldast? María Fjóla Harðardóttir fyrrverandi forstjóri Hrafnistu

Episode 97 Published 1 month, 3 weeks ago
Description

👵🏼 Hvernig viljum við eldast – og er kerfið tilbúið fyrir það sem er fram undan?

Í þessum þætti ræðum við við Maríu Fjólu Harðardóttur, hjúkrunarfræðing og fyrrverandi forstjóra Hrafnistu, sem hefur áratuga reynslu af öldrunarþjónustu og einstaka innsýn í það sem þarf að breytast.

Við lifum lengur, eldri borgurum fjölgar hratt og álagið á kerfið mun aukast verulega á næstu árum. María Fjóla er skýr: kerfið verður að breytast.

En hvernig?

🏡 Verður framtíðin fólgin í meiri þjónustu inn á heimilin?
🤖 Getur tæknin hjálpað okkur að búa lengur sjálfstætt?
💪 Hvað getum við sjálf gert í tíma til að undirbúa efri árin?
❤️ Hversu mikilvæg eru hreyfing, félagsleg tengsl, húsnæði og lífsgæði þegar við eldumst?
👥 Og hvernig getur samfélagið brugðist við fjölgun aldraðra án þess að gæði þjónustunnar skerðist?

Við tölum líka um það sem kannski fáir vilja hugsa um fyrr en nauðsyn krefur: Hvernig viljum við sjálf hafa það þegar við verðum 80, 90 ára eða eldri? Og hvað getum við gert í dag til að eiga meiri möguleika á sjálfstæði og góðum lífsgæðum síðar?

Hugvekjandi og mikilvægt samtal um mál sem snerta okkur öll – því öldrunarþjónusta framtíðarinnar snýst ekki bara um „aldraða“. Hún snýst um framtíð okkar allra. 🌿

 

🙏 Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins

Við þökkum kærlega samstarfsaðilum okkar fyrir samstarfið og stuðninginn:

🌱 Bíóbú — lífrænar íslenskar mjólkurvörur úr íslenskri mjólk með betri fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. Heimasíða: www.biobu.is (biobu.is) Elskum lífrænu jógúrtina og einnig lífræna ísinn hjá Skúbb.

🏋️ Hreyfing — heilsurækt, þjálfun, spa og þjónusta fyrir fólk sem vill hlúa að líkama og vellíðan. Spa-ið þar er einstök upplifun - og svo er hægt að skrá sig í sérstakt heilsuprógramm og versla heilsuvörur á vefsíðunni. www.hreyfing.is (Hreyfing - Finndu muninn)

🌱 Greenfit – Heilsan þín á ekki að vera ráðgáta!  Heilsumælingar Greenfit eykur aðgengi almennings á mælingum og upplýsingum sem gefa þér innsýn í heilsuna og upplýsingar um hvernig má bæta stöðuna. www.greenfit.is 

🛒 Nettó — frábært úrval lífrænna afurða, matvæla, vítamína og hreinlætisvara sem styðja við heilsu á góðu verði í verslunum um allt land. Vekjum athygli á hydroxyapatite tannkremi og frábæru úrvali af lífrænum vörum og vítamínum.
Heimasíða: www.netto.is (netto.is)

💧 GeoSilica — íslensk steinefni úr jarðhitavatni, með áherslu á náttúrulegar og hreinar vörur.  Vörur á heimsmælikvarða! Kísillinn styður hár, húð, neglur, bein og liðamót á sjálfbæran og hreinan hátt – án aukaefna.
Heimasíða: www.geosilica.is (GeoSilica Iceland)

⚡ Happy Hydrate — steinefnadrykkir með natríum, kalíum og magnesíum sem styðja við vökvajafnvægi og vöðvastarfsemi. Minnum sérstaklega á happy hydrate með creatini sem styður einnig við heilaheilsu.
Heimasíða: www.happyhydrate.is (Happy Hydrate IS)

🎯 Markmið okkar í Heilsuhlaðvarpinu hefur alltaf verið að fræða, vekja áhuga og kynna leiðir sem geta stutt fólk á sinni heilsuvegferð. Því er sérstaklega ánægjulegt að eiga samstarf við fyrirtæki sem eru einnig á þeirri braut.

Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us