Episode Details
Back to EpisodesSprengisandur 23.08.2026 - Viðtöl þáttarins
Description
Kolbeinn Tumi Daðason stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin.
Í þessum þætti:
Þjóðin er klofin í afstöðu sinni til þjóðaratkvæðagreiðslunnar um hvort hefja eigi aðildarviðræður við Evrópusambandið og Alþingi Íslendinga sömuleiðis. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra og varaformaður Viðreisnar, og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins takast á um þessi mál.
Sjónarmið eru ólík í atvinnulífinu varðandi kosti og galla Evrópusambandsins. Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair og Sveinn Logi Sölvason, forstjóri Emblu Medical móðurfélags Össurar, deila sjónarmiðum sínum.
Silja Bára Ómarsdóttir rektor Háskóla Íslands og Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna ræða mögulega ESB-aðild út frá sjónarhorni háskólasamfélagsins og neytenda.
Guðni Th. Jóhannesson prófessor í sagnfræði og fyrrverandi forseti Íslands setur Evrópumálin og ekki síst fullveldi okkar Íslendinga í samhengi.