Episode Details

Back to Episodes

Saga Suður-Afríkumannsins sem lenti í nýnasistum á Íslandi

Episode 719 Published 1 month, 1 week ago
Description
Í lok árs 1964 kom tæplega þrítugur Suður-Afríkumaður hingað til lands og vildi fá inngöngu í Háskóla Íslands. Hann hét Johannes Manong og hafði lent í pólitískum ofsóknum í Suður-Afríku á dögum aðskilnaðarstefnunnar samkvæmt fréttum í blöðum frá þessum tíma. Áður en Johannes Manong kom til Íslands eftir að hafa flúið frá Suður-Afríku sendi hann bréf á undan sér til Stúdentaráðs Háskóla Íslands og bað um aðstoð á Íslandi. Úr varð að hann að hann fékk herbergi á Stúdentagörðunum í Vatnsmýri og frítt fæði um tíma á meðan hann væri að koma sér fyrir á Íslandi. Til þess kom þó aldrei. Í ársbyrjun 1965 sagði Manong frá því í fjölmiðlum að hann hefði orðið fyrir kynþáttaofbeldi frá íslenskum nýnasistum og þess vegna flúið til Svíþjóðar þar sem hann fékk pólitískt hæli um hríð. Í fjölmiðlum á Íslandi var sagt frá því að meðan Manong bjó á Stúdentagörðunum hafi verið brenndur Ku-Klux-Klan kross á lóðinni og hann hafi fengið bréf með hakakrossi þar sem á stóð orðrétt: We are back. Fjallað er um sögu Johannes Manong og rætt við Heimi Pálsson bókmenntafræðing sem man eftir því þegar Manong kom hingað til lands. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us