Episode Details

Back to Episodes

Opnun hringvegarins um Ísland og upphaf vegasjoppumenningar

Episode 718 Published 1 month, 1 week ago
Description
Sagnfræðingurinn Arnþór Gunnarsson hefur skrifað bók um hringveginn um Ísland. Þar fjallar hann fjallar um það hvaða áhrif opnun hringvegar um Ísland hafði fyrir landann. Hringvegurinn varð til sem heild árið 1974 þegar þjóðvegur landsins var tengdur í hring með opnun brúar yfir Skeiðará á Suðurlandi. Bókin er gefin út í nýrri seríu frá Sögufélaginu þar sem fjallað er um söguleg mál í stuttum, aðgengilegum ritum. Þessi bók Arnþórs er tæplega 100 síður. Hvaða máli skipti opnun hringvegarins og hversu algengt er það í heiminum að fólk keyri hringinn í öðrum löndum? Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us