Episode Details

Back to Episodes

Heilandi garðar við sjúkrahús – lúxus eða nauðsynlegir innviðir? Hvernig er staðan við nýja Landspítalann? Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir og Svanhildur 'Sasa' Sigurðardóttir

Episode 95 Published 2 months, 1 week ago
Description

Heilandi garðar við sjúkrahús – lúxus eða nauðsynlegir innviðir? Hvernig er staðan við nýja Landspítalann?

Í þessum þætti ræðum við við Guðfinnu Mjöll Magnúsdóttur og Svanhildi „Sösu“ Sigurðardóttur um heilandi garða og mikilvægi náttúrunnar í og við sjúkrahús.

Guðfinna skrifaði á sínum tíma lokaritgerð um heilandi garða og möguleika þeirra á Íslandi og hefur lengi haft sérstakan áhuga á því hvernig græn svæði, dagsbirta og tenging við náttúruna geta stutt við líðan og bata sjúklinga – en einnig aðstandenda og heilbrigðisstarfsfólks.

Sasa kemur að málinu frá öðru sjónarhorni. Hún er sjálf að glíma við krabbamein og fundið á eigin skinni hversu mikil þörf getur verið fyrir að komast út úr klínísku umhverfi spítalans, fá ferskt loft og vera í grænu og róandi umhverfi. Facebook-færsla sem hún skrifaði um málið vakti mikil viðbrögð – ekki síst frá heilbrigðisstarfsfólki.

Leiðir Guðfinnu og Sösu lágu saman í baráttunni fyrir því að heilandi garðar verði teknir alvarlega í skipulagi nýja Landspítalans.

🌿 Hvað eru heilandi garðar og hvað skilur þá frá venjulegum útisvæðum?

🏥 Af hverju eru slík svæði í auknum mæli talin hluti af grunninnviðum nútímasjúkrahúsa en ekki bara falleg viðbót?

🧠 Hvaða áhrif geta náttúra, dagsbirta og gróður haft á streitu, taugakerfið og líðan fólks í veikindum?

❤️ Hvernig upplifði Sasa sjálf þörfina fyrir náttúru og græn svæði á meðan hún gekk í gegnum krabbameinsmeðferð?

🌱 Hvernig þarf að hanna heilandi garða svo þeir nýtist raunverulega sjúklingum – líka fólki með skerta hreyfigetu eða mjög veikum einstaklingum?

🏗️ Og stóra spurningin: Hvernig er staðan við nýja Landspítalann? Hefur verið gert nægilegt ráð fyrir heilandi görðum og grænum svæðum – og er hætta á að tækifærið glatist ef ekki er brugðist við áður en uppbyggingin gengur lengra?

Við ræðum hvort við þurfum að endurhugsa sjálfa hugmyndina um sjúkrahús – frá því að vera eingöngu staður þar sem sjúkdómar eru meðhöndlaðir yfir í umhverfi sem í heild sinni styður við bata, vellíðan og mannlega reisn.

🙏 Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins

Við þökkum kærlega samstarfsaðilum okkar fyrir samstarfið og stuðninginn:

🌱 Bíóbú — lífrænar íslenskar mjólkurvörur úr íslenskri mjólk með betri fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. Heimasíða: www.biobu.is (biobu.is) Elskum lífrænu jógúrtina og einnig lífræna ísinn hjá Skúbb.

🏋️ Hreyfing — heilsurækt, þjálfun, spa og þjónusta fyrir fólk sem vill hlúa að líkama og vellíðan. Spa-ið þar er einstök upplifun - og svo er hægt að skrá sig í sérstakt heilsuprógramm og versla heilsuvörur á vefsíðunni. www.hreyfing.is (Hreyfing - Finndu muninn)

🌱 Greenfit – Heilsan þín á ekki að vera ráðgáta!  Heilsumælingar Greenfit eykur aðgengi almennings á mælingum og upplýsingum sem gefa þér innsýn í heilsuna og upplýsingar um hvernig má bæta stöðuna. www.greenfit.is 

🛒 Nettó — frábært úrval lífrænna afurða, matvæla, vítamína og hreinlætisvara sem styðja við heilsu á góðu verði í verslunum um allt land. Vekjum athygli á hydroxyapatite tannkremi og frábæru úrvali af lífrænum vörum og vítamínum.
Heimasíða: www.netto.is (netto.is)

💧 GeoSilica — íslensk steinefni úr jarðhitavatni, með áherslu á náttúrulegar og hreinar vörur.  Vörur á heimsmælikvarða! Kísillinn styður hár, húð, neglur, bein og liðamót á sjálfbæran og hreinan hátt – án aukaefna.
Heimasíða: www.geosilica.is (GeoSilica Iceland)

⚡ Happ

Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us