Episode Details
Back to EpisodesSprengisandur 09.08.2026 - Viðtöl þáttarins
Description
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin.
Í þessum þætti:
10 - 10.30Evrópumál/fullveldi og sjálfstæði
Stefán Stefán Már Stefánsson, prófessor Emeritus er einn helsti sérfræðingur okkar um Evrópumál, hann leggur mat
á umfang framsal ríkisvalds til ESB ef af inngöngu verður.
Evrópumál/sjávarútvegur
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, forstjóri Vinnslustöðvarinnar
Hversvegna vill sjávarútvegurinn ekki ganga í ESB og draga úr
gjaldmiðlaáhættu og auka tollfrjálsan aðgang að stórum mörkuðum?
Forstjóri Vinnslustöðvarinnar svara þessum spurningum og fleiri
Evrópumál/hagkerfið
Gauti B. Eggertsson, prófessor við Brown háskóla í USA
Jón Helgi Egilsson, fyrrverandi formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands
Báðir þessir menn hafa verið áberandi í umræðu um hagkerfið og þróun
þess á síðustu vikum, en hver eru hin hagrænu rök fyrir því að leita
eftir inngöngu i Evrópusambandið, hvað mælir með og hvað gegn?
Evrópumál/landbúnaður
Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna
Bændasamtökin hafa yfirfarið hina sameiginlegu landbúnaðarstefnu ESB
og telja hana tæpast samræmast íslenskum landbúnaði enda flytjist
ákvörðunarvald að stórum hluta úr landi með ófyrirsjáanlegum
afleiðingum fyrir innlenda matvælaframleiðslu.