Episode Details
Back to Episodes
38 umferðir: Nýtt hlaðvarp Fótbolta.net um draumaliðsleik enska boltans
Published 2 months, 3 weeks ago
Description
38 umferðir er nýtt hlaðvarp fotbolta.net um Fantasy Premier League, draumaliðsleik enska boltans. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Fyrsti þáttur tímabilsins fór í loftið í dag.
Fantasy Premier League nýtur gríðarlegra vinsælda á Íslandi þar sem yfir 25 þúsund Íslendingar spila leikinn. Albert og Sindri munu vera með þátt eftir allar 38 umferðir tímabilsins, greina frá því sem gerðist í þeirri síðustu og leggja línurnar fyrir þá næstu.