Episode Details

Back to Episodes

Sprengisandur 02.08.2026 - Viðtöl þáttarins

Episode 2054 Published 3 weeks, 5 days ago
Description

Kristján Kristjánsson styrir kröftugri umræðu um þjóðmálin.

 

Í þessum þætti:

 

Efnahags- og evrópumál
Arnór Sighvatsson, fyrrverandi aðstoðarseðlabankastjóri

Arnór Sighvatsson, fyrrverandi aðstoðarseðlbankastjóri, ræðir afstöðu
sína til þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst og þá skoðun sína að
Evran henti íslenska hagkerfinu vel. Hann telur efnahagslegt fullveldi
best tryggt með inngöngu í ESB og þátttöku í gjaldmiðlabandalagi.

Hvalveiðar
Árni Sverrisson, formaður Félags skipstjórnarmanna

Árni Sverrisson segir reynslu sjó- og skipstjórnarmanna skýra um áhrif
gríðarlegrar fjölgunar hvala á fiskistofna við Íslandsstrendur.
Bregðast verði við en umfram allt hvetur hann til miklu umfangsmeiri
rannsókna á vistkerfi hafsins og samspili tegunda sem þar eru.


Efnahagsmál/Laxeldi á landi
Lárus S. Ásgeirsson stjórnarformaður Laxeyjar í Vestmannaeyjum

Lárus Ásgeirsson rekur möguleika Laxeyjar og annarra
landeldisfyrirtækja í laxi til næstu ára. Spár gera ráð fyrir því að
Íslandi taki forystu á þessu sviði innan fárra ára. Gríðarlegir
möguleikar á verðmætaaukningu í útflutningi að hans mati.

Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us