Episode Details
Back to EpisodesSprengisandur 26.07.2026 - Viðtöl þáttarins
Description
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin.
Í þessum þætti:
Sjávarútvegur/Evrópumál
Kristján Vigfússon, dr. í stefnumótun við HR
Kristján ræðir rannsóknir sínar á íslenskum sjávarútvegi og forskoti
hans í alþjóðlegum samanburði og veltir upp möguleikum á auknum
umsvifum íslenskra fyrirtækja ef til kæmi aðild að ESB.
Dómsmál
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra
Dómsmálaráðherra ætlar ekki að aðhafast neitt í fyrirkomulagi á sölu
áfengis, þrátt fyrir miklar breytingar á því og niðurstöður dómstóls
um lögmæti þeirra breytinga. Hvernig hyggst hún bregðast við starfsemi
erlendra veðmálafyrirtækja á Íslandi og skyldum málum, t.d, tekjuöflun
stórra samfélagsmiðlafyrirtækja, þar sem lögsaga íslenska ríkisins er
ekki ótvíræð.
Stjórnmál/Evrópumál
Sigríður Á Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins
Sigmar Guðmundsson, þingflokksformaður Viðreisnar
Hveru alvarleg mistök voru það hjá utanríkisráðherra að lleiðrétta
ekki frétt þar sem haft var ranglega eftir henni að ráðherrann hefði
rætt við forsætisráðherra Hollands um varanlega undanþágur fyrir
Íslendinga frá sjávartúvegsstefnu ESB?
Kjarasamningar
Finnbjörn Hermannsson, forseti ASÍ
Er orðið ljóst að taka þarf upp kjarasamninga í haust - verðbólgutölur
benda til þess en hvað vill forseti ASÍ að gerist. samtökin hafa talað
fyrir ráðstöfunum í efnahagsmálum frá í febrúar en litla athygli
fengið.