Episode Details

Back to Episodes

Leiðangur Johns Snorra á K2

Published 2 months, 1 week ago
Description

Leiðangur Johns Snorra Sigurjónssonar á K2, hættulegasta fjall jarðar, í febrúar 2021 átti eftir að reynast örlagaríkur. Hann freistaði þess að verða fyrstur manna til að klífa fjallið að vetrarlagi og þjóðin bæði fylgdist með undirbúningnum að ferðinni og hélt niðri í sér andanum þegar hætti að heyrast frá honum. Farið var í umfangsmiklar leitaraðgerðir á þessu miskunarlausa fjalli í Pakistan, þar sem aðstæður geta breyst á augabragði og mistök geta haft afdrifaríkar afleiðingar. Einar Bárðarson, vinur Johns Snorra, fer yfir málið með okkur og útskýrir af hverju hann vill halda minningu vinar síns á lofti og hvers vegna menn leggja í slíka hættuför. 

Samsetning: Adelina Antal

Styrktaraðilar Eftirmála eru:

- Birgisson

- Góa 

- Húðfegrun 



Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us