Episode Details
Back to EpisodesSprengisandur 19.07.2026 - Viðtöl þáttarins
Description
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin.
Í þessum þætti:
Ferðaþjónusta/skattheimta
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF
Ferðaþjónustan er ósátt við ríksstjórnina, ósátt við nýja skatta og þá stefnu sem ríkisstjórnin hefur í atvinnumálum. Þrátt fyrir samtal milli greinar og atvinnuvegaráðuneytisins telur ferðaþjónustan alltof langt gengið í innleiðingu nýrra skatta.
Loftslagsmál/alþjóðasamningar
Bjarni Már Magnússon, lögmaður
Fjallað um ráðgefandi álit Alþjóðadómstólsins í Haag um skyldur ríkja í loftslagsmálum, álit sem þykir marka tímamót vegna þess hversu afdráttarlaus það er um ábyrgð ríkja í þessum málaflokki og skyldur þeirra, skyldur sem jafnvel höggva í þjóðarrétt.
Evrópumál
Birgir Ármannsson, fyrrverandi fors. Alþingis
Dagbjört Hákonardóttir, alþingismaður
Framhald umræðu um Evrópumál, afsal eða framsal fullveldis til Evrópusambandsins, nauðsynlegar stjórnarskrárbreytingar ef til inngöngu kemur og útfærslu þeirra.
Bretland/stjórnmál
Erlingur Erlingsson, sagnfræðingur
Erlingur sem búsettur eru í Bretlandi, fer yfir nýjustu hræringar í breskum stjórnmálum, nýr forsætisráðherra tekur við 20. júlí, sá áttundi á 10 árum, þessi breyting undirstrikar enn og aftur ólguna í breskum stjórnmálum.