Episode Details
Back to Episodes17. júlí - Barnaleg mistök, markasjúkir FH-ingar og risastór helgi
Episode 158
Published 1 month, 2 weeks ago
Description
Nóg var að ræða í Besta sætinu þennan föstudaginn. Evrópuleikir, Bestu deildirnar, Opna breska, Formúla 1 og fleira til.
Stjarnan og Vestri eiga bæði annað Evrópuverkefni framundan þrátt fyrir að hafa mistekist að sigra í leikjum sínum í gær og Íslendingaliðið í Færeyjum fór áfram eftir ótrúlega atburðarrás.
FH-ingar eru skemmtikraftar Bestu deildar kvenna og halda áfram að raða inn mörkum. Gott yngri flokka starf er þá að skila sér vel í Hafnarfirði.
Úrslitaleikur HM er fram undan á risastórri íþróttahelgi þar sem fjórir leikir fara fram í Bestu deild karla, Formúla 1 fer fram á Spa og það stefnir í brautarmet á Opna breska meistaramótinu í golfi.