Episode Details

Back to Episodes

Sprengisandur 12.07.2026 - Viðtöl þáttarins

Episode 2034 Published 1 month, 2 weeks ago
Description

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin.

Í þessum þætti:

Lofslagsmálhitabylgjur
Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftslags hjá Veðurstofu Íslands
Hitabylgjur eru margfalt tíðari í Evrópu en þær voru fyrir fáeinum árum, engin heimsálfa hitnar hraðar - hvað er á seyði og mun þessi þróun halda áfram? Hvað segir þessi staða okkur um loftslagsbreytingar á jörðinni? 

Evrópumál
Davíð Þór Björgvinsson, prófessor við HA
Munu Íslendingar glata fullveldi sínu og sjálfstæði við að ganga í Evrópusambandið ef af yrði? Hver yrðu áhrif á lögsögu íslenskra dómstóla? Hversu víðtækt er vald Evrópusambandsins í raun og veru?

Menntamál
Inga Sæland, menntmálaráðherra
Áhyggjur af menntakerfinu eru miklar, námsgagnaframleiðsla í skötulíki, einkunnagjöf orkar tvímælis og alþjóðlegur samanburður erfiður - hver eru áform ráðherra til að vinda ofan af þessari þróun? 


Megas/tónlist/menning
Jónatan Garðarsson, fjölmiðlamaður
Jónatan Garðarsson er manna fróðastur um sögu íslenskrar tónlistar, hann fjallar um Megas, áhrif hans og feril nú þegar hann er allur. Listamaðurinn sem þjóðin elskaði og hataði í senn. 

Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us