Episode Details
Back to EpisodesSprengisandur 05.07.2026 - Viðtöl þáttarins
Description
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin.
Í þessum þætti:
Skólamál
Jón Pétur Zimsen alþingismaður
Kolfinna Jóhannesdóttir, skólastjóri Kvennaskólans
Samræmi í einkunnagjöf grunnskóla er hverfandi, enn einn þátturinn í menntakerfinu sem virðist hafa farið úrskeiðis hin síðari ár.
Innviðaframkvæmdir
Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Birtu lifeyrissjóðs
Sérstakt innviðafélag hefur verið stofnsett á Íslandi. Mjög er horft til Færeyjar af þessu tilefni þar sem byggð hafa verið hver jarðgöngin á fætur öðrum síðustu 25 árin, á meðan Íslendingar hafa þvargað um forgangsröðun á sama sviði. Ólafur ræðir afstöðu lífeyrissjóða sem fjárfesta í stórum innviðaverkefnum á Íslandi.
Evrópumál
Erna Bjarnadóttir, hagfræðingur og stjórnarkona í Heimssýn
Erna hefur gagnrýnt harðlega hugmyndir um að matvælaverð lækki verulega á Íslandi við inngöngu í ESB og telur þær byggðar á óskhyggju.
Stjórnmál/Reykjavíkurborg
Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar
Pétur gagnrýnir hagræðingaraðgerðir nýs meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur.