Episode Details

Back to Episodes

Ójöfnuður til heilsu fer vaxandi

Episode 710 Published 3 months ago
Description
Í gær birti embætti landlæknis nýja úttekt þar sem rýnt er í þróun á andlegri heilsu landsmanna undanfarinn áratug. Það vekur athygli að mikinn mun má sjá á öllum mælingum eftir fjárhagsstöðu, á þeim sem eiga erfitt með að ná endum saman og þeim sem eiga auðvelt með það, og munar yfirleitt tugum prósenta. Embættið telur niðurstöðurnar benda til þess að ójöfnuður til heilsu og vellíðanar fari vaxandi hér á landi. Rætt er við Sigrúnu Daníelsdóttur, sálfræðing og verkefnastjóra geðræktar hjá embættinu, og Kolbein Hólmar Stefánsson, dósent við félagsvísindasvið Háskóla Íslands. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us