Episode Details
Back to EpisodesSprengisandur 21.05.2026 - Viðtöl þáttarins
Description
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin.
Í þessum þætti:
Menningarmál/Saga
Kristján B. Jónasson, bókmenntafræðingur
Fjallað er um flutning beina Jónasar Hallgrímssonar til Íslands árið 1946, eitt undarlegasta mál síns tíma en um leið mál sem snertir sjálfstæðisbaráttu Íslendinga og sjálfstæði með afgerandi hætti. Enginn veit hvort bein Jónasar eru í raun þau réttu.
Evrópumál/Evra
Baldur Pétursson fyrrverandi framkvæmdastjóri við Norræna Þróunarbankann
Baldur er eindreginn stuðningsmaður þess að Íslendingar taki upp evru og telur mikla möguleika felast í því fyrir Íslendinga. Hann andæfir ákveðið þeirri skoðun að það sé rétt að halda í íslenska krónu.
Alþjóðmál
HIlmar Þór Hilmarsson, prófessor við HA
Hvernig verða áhrif Íransstríðsins og eftirmála þess á samband Bandaríkjanna við Evrópuþjóðir? Bandaríkjamenn halda áfram að gagnrýna önnur Natóríki og segja Úkraínustríið ekki koma sér við. Hafa þessar áherslur áhrif á stöðu Íslands og þá hvernig?
Öfgaöfl í Þýskaland
Helgi Gunnlaugsson, prófessor við HÍ
Helgi fjallar um nýlega heimsókn sína til Þýskalands og sívaxandi áhrif öfgaafla þar í landi sem óneitanlega hefur vakið furðu og óhug margra. Hverjar eru skýringar þessarar þróunar?