Episode Details
Back to EpisodesDagur 37 - Allt að gerast og egóið að þvælast fyrir
Episode 66
Published 4 weeks, 1 day ago
Description
Í þættinum er farið yfir kafla 11–12 í Postulasögunni: vöxt safnaðarins í Antíokkíu, Barnabas uppörvara og hvernig heiðingjar taka kristni við kraft anda Guðs. Agabus spámaður varar við hungursneyð og söfnun fer fram til aðstoðar Jesúfólkinu í Júdeu.
Þá er fjallað um ofsóknir Heródesar Agrippa, aftöku Jakobs, fangelsun Péturs og undraverða lausn hans — auk ígrundunar um egóið og kærleikann; boðskap Jesú til okkar allra.
Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson