Episode Details

Back to Episodes

Samhengi uppsagna og 10 milljarða arðgreiðslu Kviku banka

Episode 699 Published 3 months, 2 weeks ago
Description
Kvika banki tilkynnti um uppsagnir á ellefu starfsmönnum sama daginn í síðustu viku og hluthafafundur bankans ákvað að greiða rúmlega 10 milljarða króna sérstaka arðgreiðslu út úr bankanum. Fimm stærstu hluthafar bankans eru lífeyrissjóðir. Hvað segja lífeyrissjóðirnir um þessa arðgreiðslu og þessar uppsagnir samhliða henni? Fjallað er um þetta og samhengi þessara arðgreiðslu en hún var ákveðin skömmu eftir að hætt var við forviðræður Kviku og Arion banka um mögulegan samruna nú í haust. Birt eru svör frá Ármanni Þorvaldssyni, forstjóra Kviku, um málið sem og frá tveimur lífeyrissjóðum sem eru meðal stærstu hluthafa Kviku, Gildi og Birtu. Þá er rætt við Ara Skúlason, formann félags starfsmanna fjármálafyrirtækja. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us