Episode Details
Back to Episodes
Enski boltinn - Augnablikið sem allir munu tala um
Published 1 month, 3 weeks ago
Description
Arsenal er með pálmann í höndunum þegar liðið á tvo leiki eftir í ensku úrvalsdeildinni. Núna þarf bara eitthvað ótrúlegt að gerast svo þeir verði ekki meistarar.
Arsenal vann 0-1 sigur á West Ham um helgina þar sem einn stærsti VAR-dómur sögunnar leit dagsins ljós.
Mikið var rætt um þetta í Enski boltinn hlaðvarpinu sem og um aðra leiki helgarinnar en það er barátta á flestöllum vígstöðum þegar lítið er eftir af deildinni.
Guðmundur Aðalsteinn stýrir þættinum og gestir eru ÍR-ingarnir Ágúst Unnar Kristinsson og Sölvi Haraldsson.