Episode Details

Back to Episodes

Sprengisandur 10.05.2026 - Viðtöl þáttarins

Episode 1951 Published 1 month, 3 weeks ago
Description

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin.

Í þessum þætti:

Læsi á Íslandi
Sigríður Ólafsdóttir, dósent við Háskóla Íslands
Sigríður hefur rannsakað þróun læsis á Íslandi um margra ára skeið. Rannsóknir sýna ótvírætt að læsi hefur hrakað gífurlega á síðustu árum, hvaða áhrif hefur það og hvað er til ráða?

Stjórnmál/Evrópumál
Pawel Bartoszek, formaður utanríkismálanefndar alþingis
Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður
Stjórnarandstaðan sakar ríkisstjórnina um að hafa átt fullkomlega óviðeigandi samráð við ESB um tímasetningar og fyrirkomulag þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna, kallar það leynimakk og undanbrögð. Hvað er satt og rétt?

Landeyjahöfn 
Fannar Gíslason, forstöðumaður Hafnadeildar Vegagerðarinnar 
Eitt umdeildasta mannvirki Íslandssögunnar er enn ekki í fullri notkun, 16 árum eftir að það var opnað. Hvað þarf í raun að gera til þess að tryggja snurðulausu starfsemi Landeyjahafnar, er það í raun og veru hægt?

Atvinnulíf/skattamál
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. 
Ný úttekt leiðir í ljós að fasteignaskattar sveitarfélaga á atvinnuhúsnæði hafa hækkað um 50% að raungildi síðustu tíu árin. Hafa stjórnmálaflokkar lagt fram raunhæfar tillögur til úrbóta í húsnæðismálum í yfirstandandi kosningabaráttu? 

Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us