Episode Details

Back to Episodes

Sprengisandur 03.05.2026 - Viðtöl þáttarins

Episode 1943 Published 2 months ago
Description

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin.

Í þessum þætti:

Gervigreind
Hafsteinn Einarsson, dósent í tölvunarfræði við Háskóla Íslands

Umræðan um Mythos gervigreindarlíkan Anthropic fyrirtækisins var engu lík, líkanið var tekið af markaði af hálfu skapara síns vegna þess að það bjó yfir eiginleikum sem enginn sá fyrir. Hvað er á seyði og hvert stefnir í þessu eina stærsta máli samtímans, gerð gervigreindarlíkana sem eiga sér sjálfstætt líf. 

Sveitarstjórnarmál, Hafnarfjörður
Guðmundur Árni Stefánsson, oddviti Samfylkingu
Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokks

Oddvitar helstu fylkinga í Hafnarfirði takast á. Helstu mál, ólíkar áherslur, hvernig lítur framtíðin út í þeirra augum, hvað breytist ef Samfylkingin kemst í lykilstöðu?

Stjórnmál

Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs
Halla Gunnarsdóttir, formaður VR

Halla hvatti til samstöðu verkalýðshreyfingarinnar 1. maí, en Björn taldi félögin tímaskekkju og rétt að leggja þau niður. Undirliggjandi er djúpstæður ágreiningur um uppbyggingu samfélags. 

Landeyjarhöfn
Ása Berglind Hjálmarsdóttir, alþingismaður
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmanneyjum 

Landeyjahöfn hefur nú verið rekin í 16 ár en enn og aftur sannast hversu erfið starfræksla hennar, hvað er til ráða? Hvað vilja Eyjamenn, hvað getur samgöngunefnd þingsins lagt til? Hvernig verða samgöngur tryggðar til Eyja?

Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us