Episode Details

Back to Episodes
Hreppar voru stofnaðir til að sjá um fólk | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E25

Hreppar voru stofnaðir til að sjá um fólk | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E25

Published 5 months ago
Description

Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði, er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hann segir að þegar mest var hafi fjölda hælisleitenda í Hafnarfirði verið á bilinu 400 – 500 manns. Það hafi verið fjármagnað af ríkinu en þó hafi fylgt því talsvert álag á bæjarfélagið. Erlendir ríkisborgarar eru nú um 2/3 þeirra sem þiggja fjárhagsaðstoð frá Hafnarfjarðarbæ en Orri segir að fjöldi hælisleitenda sé núna vel viðráðanlegur. Orri ræðir hér áherslur sínar í bæjarstjórn en hann vill meðal annars breyta íþróttahúsinu við Strandgötu í menningarhús, hann vill að samningur um vaxtarmörk höfuðborgarsvæðisins verði afnuminn og segir galið að Reykjavík geti hindrað Hafnarfjörð í að skipuleggja ný uppbyggingarsvæði. Þá vill hann einnig að framkvæmdum við Reykjanesbraut hjá Kaplakrika verði flýtt þar sem byggð verði göng til að leysa mikið ófremdarástand sem þar ríkir í dag. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us