Episode Details
Back to Episodes
Bítið - þriðjudagur 14. apríl 2026
Description
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari.
Guðmundur Valur Guðmundsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs hjá Vegagerðinni, ræddi við okkur um ráðstefnu á morgun á vegum Vegagerðarinnar.
Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, ræddi íþróttaiðkun barna og kostnað við hana.
Guðmundur Árni, oddviti Samfylkingar í Hafnarfirði og Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði, ræddu um það sem brennur á íbúum í aðdraganda kosninga.
Ragnar Sigurðsson, oddviti Sjálfstæðisflokks í Fjarðabyggð og formaður bæjarráðs, var á línunni og ræddi gjaldskrárlækkanir í Fjarðabyggð.
Valdimar Óskarsson frá Keystrike ræddi nýjustu vendingar í gervigreindinni.
Kamilla Mía Briem, Stefán Snær Sigurðsson Kaldalóns, Halldóra Mjöll Snorradóttir, Patrekur Sigurðsson og Sunna Björg Sigurðardóttir, ungir frumkvöðlar úr Menntaskólanum við Sund, ræddu um Sjávardjásn, sjávardjásn.is.