Episode Details
Back to EpisodesRúnar gerir upp 20 ára feril
Episode 90
Published 3 weeks, 5 days ago
Description
Rúnar Kárason tilkynnti í vikunni að leikmannaferli hans í handbolta sé lokið 38 ára að aldri. Hann verður þó áfram í handboltanum enda starfsmaður og þjálfari hjá Fram. Rúnar á langan og farsælan feril að baki þar sem hann lék um margra ára skeið með mörgum af bestu liðum Þýskalands, var öflugur í Danmörku og vann svo Íslandsmeistaratitla með bæði ÍBV og Fram hér heima auk þess að spila 100 landsleiki fyrir Ísland.
Valur Páll Eiríksson leit við á skrifstofu hans í Úlfarsárdalnum og ræddi við hann ákvörðunina um að hætta auk þess sem ferillinn var gerður upp á hundavaði.