Episode Details
Back to EpisodesDagur 16 - Páskavikan; Jesús, musterið og fíkjutréð
Episode 45
Published 3 months, 2 weeks ago
Description
Velkomin í Biblíuna á Mannamáli.
Páskavikan í þessum þætti fjallar um mánudag og þriðjudag, samkvæmt Markúsi: fíkjutréð, sem engan ávöxt bar; Jesú, sem virðist svolítið pirraður í musterinu; og merkingu alls þessa í ljósi spádóma Gamla testamentisins.
Við ræðum tengslin við Jeremía og aðra spámenn; dæmisöguna um víngarðinn og hvernig Markús sýnir okkur, að allt þetta táknar endalok hefðbundinna trúarforma og undirbúning fyrir nýtt tímabil í Guðs ríki.