Episode Details

Back to Episodes
Ætlar að verða heimsmeistari í hnefaleikum | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E18

Ætlar að verða heimsmeistari í hnefaleikum | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E18

Published 6 months ago
Description

Emin Kadri er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hann er einn af örfáum atvinnuhnefaleikurum á Íslandi og hefur sett stefnuna á að verða heimsmeistari í sínum þyngdarflokki. Hann ætlar sér þannig að koma Íslandi rækilega á kortið í box íþróttinni. Emin er sonur innflytjenda á Íslandi en foreldrar hans komu til Íslands frá gömlu Júgóslavíu á tíunda áratugnum. Hann segir foreldra sína alltaf hafa lagt mikla áherslu á að Emin fengi tækifæri til að láta eitthvað úr sér verða og til þess hafi þau lagt sig fram við að leggja sitt af mörkum til þjóðfélagsins og blandast vel íslensku samfélagi. Emin er að fara keppa á fyrsta atvinnuhnefaleikakvöldi sem haldið hefur verið á Íslandi í 70 ár þann 10. apríl næstkomandi í Gamla Bíó en þar mun Kolbeinn Kristinsson, okkar helsta hnefaleikastjarna sem er ósigraður á sínum ferli, einnig berjast við Sasa Milenkovic sem er þekktur fyrir að hafa rotað flest alla sína andstæðinga.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us