Episode Details

Back to Episodes

Sprengisandur 29.03.2026 - Viðtöl þáttarins

Episode 1904 Published 3 months, 1 week ago
Description

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin.

Í þessum þætti:

Efnahagsmál
Konráð Guðjónsson hagfræðingur
Már Mixa, lektor við HÍ
Framhald umræðu um þráláta verðbólgu, leiðir til að stöðva hækkun hennar, eru þær til?


Afbrotamál/biskupsmálið
Gabríela Bryndís Ernudóttir
Sex þátta hlaðvarp um biskupsmálið svokallað, ásakanir um kynferðisbrot á hendur fyrrverandi biskupi í lok síðustu aldar, hefur vakið mikla athygli. Gabríela er höfundur þáttanna og fer yfir efni þeirra, réttum 30 árum eftir að þau hófust. 


Evrópumál/alþjóðamál
Sigmar Guðmundsson, alþingismaður
Diljá Mist Einarsdóttir, alþingismaður
Óveðursskýin hrannast upp á alþjóðasviðinu, hvaða áhrif hefur það á afstöðu Íslendinga til utanríkismála og þar með talið til umsóknar um aðild að Evrópusambandinu. 


Rafræn heilbrigðisþjónusta
Jenna Huld Eysteinsdóttir, læknir
Ragna Hlín Þorleifsdóttir, læknir
Framhald umræðu um rafræna heilbrigðisþjónustu þar sem stefnt er að sparnaði og skilvirkni og aukinni þjónustu með rafrænum hætti. Að þessu sinni er sjónum beint að húðlækningum. 

Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us