Episode Details

Back to Episodes

Saga móður sem tilkynnti Waltraud fyrir ofbeldi

Episode 655 Published 6 months ago
Description
Marta Gunnardóttir var 25 ára einstæð móðir þegar hún sendi dóttur sína og son á fósturheimilið til Waltraud Paulsen í Mosfellssveit árið 1974. Þau bjuggu hjá Waltraud í tvö ár og upplifðu harðræði og ofbeldi sem hefur fylgt þeim æ síðan segir Marta. Börnin voru tveggja og fjögurra ára þegar þau fóru á heimilið. Stúlkan var beitt kynferðisofbeldi og drengurinn var bundinn og honum hótað með stórum hundi. Þegar Marta áttaði sig á því í hverju börnin hennar höfðu lent talaði hún við barnaverndaryfirvöld í Mosfellssveit. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us