Episode Details

Back to Episodes

Sprengisandur 22.03.2026 - Viðtöl þáttarins

Episode 1896 Published 3 months, 2 weeks ago
Description

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin.

Í þessum þætti:

Atvinnumál/nýsköpun
Róbert Guðfinnsson, atvinnurekandi
Róbert ræðir framtíð Genís, nýsköpunarfyrirtækis á Siglufirði sem leitar að fjármagni á Íslandi til frekari vaxtar en verður lítt ágengt. Verður Genís enn eitt íslenska frumkvöðlafyrirtækið sem endar í erlendu eignarhaldi og hugsanlega með starfsemi utan Íslands?


Efnahags/kjaramál
Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins
Eru kjarasamningar í uppnámi vegna verðbólgu? Hvað gerist í haust? Er hægt að ná samkomulagi um efnahagsráðstafanir 


Stjórnmál
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins
Fjölmennur flokksráðsfundur Sjálfstæðisflokksins er yfirstaðinn, fylgi flokksins hefur verið lítið en þessi stærsti flokkur sögunnar reynir að ná vopnum sínum á ný - hvernig?


Vinnumarkaður
Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB
Helga Rósa Másdóttir, formaður Félag ísl. hjúkrunarfræðinga
Opinberir starfsmenn eru æfir vegna frumvarps fjármálaráðherra um að afnema áminningarskyldu áður en til brottvikningar getur komið. Forsvarsmenn þeirra telja rétt að draga frumvarpið till baka á meðan aðrir segja nauðsynlegt að breyta starfsumhverfi opinberra starfsmanna. 

Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us