Episode Details

Back to Episodes
Rautt í Kauphöllinni en fiskurinn í hæstu hæðum | Hluthafaspjallið | S03E11

Rautt í Kauphöllinni en fiskurinn í hæstu hæðum | Hluthafaspjallið | S03E11

Published 6 months, 2 weeks ago
Description

Það hefur verið bakslag á hlutabréfamarkaðnum að undanförnu og þessari viku verður ekki lýst öðru vísi en rauðri í Kauphöllinni en verð á fiski hefur hins vegar sjaldan verið hærra á erlendum mörkuðum, líkt og fram kemur í þrælskemmtilegu viðtali við gest þáttarins, Ægi Pál Friðbertsson, forstjóra Ice Seafood. Þetta er spennandi þáttur þar sem rætt er um lækkunin á Kauphöllinni og hvort ekki hafi myndast núna verðmæt kauptækifæri; rýnt er áfram í kaup Símans á vefmiðlum- og útvarpsstöðvum Sýnar, lækkun gengis Íslandsbanka síðustu daga – nú og síðast en ekki síst velta ritstjórarnir Sigurður Már Jónsson og Jón G. Hauksson því fyrir sér hvort ríkisstjórnin sé með kolrangar áherslur og hvort forsætisráðherrann, Kristrún Frostadóttir, sé allt of ung í þetta starf og hafi misst leiðtogasprotann til Þorgerðar Katrínar og Ingu Sæland en Kristrún hafði enga reynslu af stjórnun og forystuhlutverki áður en hún varð formaður Samfylkingar og forsætisráðherra.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us