Episode Details

Back to Episodes

Frumskógur fósturheimilanna: „Eins og ég væri í fangelsi“

Episode 650 Published 6 months, 1 week ago
Description
Kona sem dvaldi á fósturheimili í Garðinum á Reykanesi segir að það hafi verið eins og fangelsi að búa þar. Hún bjó á heimilinu á árunum 2017 og 2019. Heimilið hét Gauksstaðir og er ekki lengur starfandi. Konan ber vistinni á heimilinu samt frekar vel söguna almennt séð en segir aðra stúlku hafa átt erfiðari stundir þar. Ekki fást skýr svör frá Barna- og fjölskyldustofu, arftaka Barnaverndarstofu, af hverju hætt var að vista börn á heimilinu. Annar af forsvarsmönnum heimilisins vill ekki veita viðtal. Fósturheimili á Íslandi hafa mikið verið til umræðu eftir að fréttaskýringaþátturinn Kveikur sagði frá Bakkakotsmálinu svokallaða í byrjun febrúar. Ríkisstjórnin mun leggja fram frumvarp um rannsóknarnefnd sem mun rannsaka Bakkakotsmálið en ákveða þarf hversu víðfem sú rannsókn á að vera og hvort hún eigi einnig að taka til annarra fósturheimila. Rætt er við stúlku sem bjó á fósturheimilinu í Garðinum og Pál Þórhallsson, lögfræðing í forsætisráðuneytinu. Þá eru birt svör frá Heru Ósk Einarsdóttur hjá velferðarsviði Reykjanesbæjar og Ásdísi Sigríði Ágústsdóttur hjá Barna- og fjölskyldustofu. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us