Episode Details

Back to Episodes

Besta sætið - 18. mars

Episode 78 Published 1 month, 1 week ago
Description

Orri Steinn Óskarsson er mættur aftur í landsliðið en mun fyrirliðinn spila leikina gegn Kanada og Haítí? Gylfi Þór Sigurðsson mun allavega gef sig allan í verkefnið. Albert Guðmundsson verður hins vegar í sprautumeðferð á Ítalíu.

Ísland á þrjá fulltrúa í marsfárinu mikla en kemur í ljós að Almar Atlason býr alls ekkert í Miami, borginni í Flórída. Hann býr í Miami, Ohio. Þetta reyndist þáttastjórnandanum mikið áfall.

Meistaradeildin býður svo upp á tvo mjög spennandi leiki í kvöld og tvo minna spennandi. Áhugavert verður samt að sjá hvort Harry Kane klæði sig í markmannshanskana og hvort Igor Tudor sæki einhvern úr unglingaliðinu til að setja í markið hjá Tottenham.

Þetta og margt fleira var til umræðu í Besta sætinu. Ágúst Orri Arnarson, Stefán Árni Pálsson og Valur Páll Eiríksson sáu um þátt dagsins.

Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us