Episode Details

Back to Episodes

Þetta gerist næst í Bakkakotsmálinu

Episode 648 Published 6 months, 1 week ago
Description
Einn og hálfur mánuður er frá því að umfjöllun um Bakkakotsmálið var birt í fréttaskýringaþættinum Kveik. Þátturinn vakti mikla athygli og umtal næstu daga og vikur þar á eftir. En hvað gerist svo? Hvað eru stjórnvöld að gera til að bregðast við þessu máli? Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra boðaði ferns konar aðgerðir til að bregðast við Bakkakotsmálinu í kjölfar þáttarins. Samhliða er verið að leggja fram nýtt frumvarp til laga um barnavernd á Alþingi nú á vorþinginu. Efni frumvarpsins tengist því sem fjallað er um í Bakkakotsmálinu. Rætt er við Pál Þórhallsson sem er lögfræðingur og skrifstofustjóri í ráðuneytinu sem hefur umsjón með viðbrögðum ráðuneytisins við Bakkakotsmálinu. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us