Episode Details

Back to Episodes

Danijel Djuric: Hjartað eða peningar, eldur í augunum og bíómyndin Besta deildin

Episode 77 Published 1 month, 1 week ago
Description

Danijel Dejan Djuric hefur verið á meðal umtalaðri fótboltamanna landsins undanfarin ár. Hann vakti mikla athygli í framlínu Víkinga og vann með liðinu bæði Íslands- og bikarmeistaratitil áður en hann hélt utan í atvinnumennsku til Króatíu fyrir ári síðan.

Þrátt fyrir að hafa liðið vel í 25 gráðunum með sundlaug í garðinum vantaði eitthvað, þá sérlega spilatíma, og er Danijel nú snúinn heim. Orðið á götunni er að KA hafi greitt hátt í 18 milljónir króna fyrir kappann sem myndi gera hann að einum dýrasta leikmanni í sögu efstu deildar.

Hann hafi þá valið KA fram yfir uppeldisfélagið Breiðablik vegna þess að Norðanmenn hafi boðið svo háan samning að ekki annað hafi verið í stöðunni.

Valur Páll Eiríksson ræddi skiptin við Danijel, ástæðuna fyrir þeim og valið á KA við Danijel sem fór vel yfir sviðið.

Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us