Episode Details

Back to Episodes

Kaup risans Símans á vinsælum fjölmiðlum

Episode 646 Published 6 months, 1 week ago
Description
Fyrirhuguð kaup Símans á vinsælum fjölmiðlum eins og Vísi.is og Bylgjunni af Sýn hafa vakið athygli. Síminn hefur á síðustu tveimur árum keypt mörg fyrirtæki á auglýsinga- og fjártæknimarkaði og vaxið talsvert. Stærsti hluthafi Símans er fjárfestingarfélagið Stoðir sem á sér rúmlega 50 ára langa sögu í ólíkum myndum, meðal annars sem FL Group á árunum fyrir bankahrunið 2008. Meðal hluthafa Stoða eru nokkrir af þekktari fjárfestum landsins. Stoðir er einn stærsti einkafjárfestirinn á íslenskum hlutabréfamarkaði í dag og hyggur á enn meiri vöxt. Rætt er við Snorra Jakobsson um fyrirhuguð kaup Símans á þessum eignum af Sýn og vöxt fyrirtækisins. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us