Episode Details

Back to Episodes

Stjórnendur atNorth hagnast ævintýralega á sölu gagnaverafyrirtækisins

Episode 640 Published 6 months, 3 weeks ago
Description
Íslenska gagnverafyrirtækið atNorth hefur verið selt fyrir 485 milljarða króna líkt. Þetta er langstærsta salan á íslensku gagnaverafyrirtæki hingað til. Fyrirtækið var í eigu svissneska sjóðsstýringafyrirtækisins Partners Group að 95 prósent leyti og hópur stjórnenda atNorth átti 5 prósenta hluta. Stjórnendurnir skipta með sér rúmlega 24 milljörðum króna af söluverðinu að frádregnum kostnaði þeirra við kaup á hlutabréfunum á sínum tíima og skuldsetningu vegna þeirra. Á bak við eignarhald svissneska fyrirtækisins eru hins vegar fjárfestar sem hafa fjárfest í sjóðum þess en ekki liggur fyrir hverjir þeir eru fyrir utan einn: Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. Fjallað er um söluna á atNorth og mikilvægi uppgangs gervigreindar við verðmat fyrirtækisins. Fyrirtækið er nú selt á 10 sinnum hærra en verði en fyrir fjórum árum síðan. Rætt er forstjóra atNorth Eyjólf Magnúson Kristinsson og Hlöðver Árnason hjá upplýsingatæknifyrirtækinu Apró. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us