Episode Details

Back to Episodes

Andri Snær Magnason um húsin sem rísa, draumana sem víkja í menningu málamiðlana og gjöfina sem við gætum fært hvert öðru 💞

Episode 70 Published 7 months, 3 weeks ago
Description

Í þessum þætti fáum við til okkar Andra Snæ Magnason – rithöfund, hugsuð og einn skarpasta samfélagsrýnanda landsins. Nýjasta bókin hans Jötunnsteinn er stutt en hárbeitt saga þar sem hann kastar steini – bókstaflega og táknrænt – inn í stóra umræðu um byggt umhverfi, fegurð og það sem við erum að gera við borgir og bæi.

Við ræðum hvernig umhverfi og byggð á Íslandi – og víðar – hefur þróast síðustu ár: hvers vegna svo margt virðist verða eins, fjöldaframleitt og ópersónulegt, og hvað það segir um okkur og gildin sem stýra ákvarðanatöku. Við tökum líka upp spurningu sem snertir okkur öll: Hvað gefa byggingar umhverfinu? Er eitthvað í hönnuninni sem er líka gjöf til samfélagsins – eða er allt bara nýting og fermetrar?

Hönnun bygginga og umhverfis hefur einnig áhrif á heilsu: birta og dagsljósið, sjónlínur, rými, tengsl við náttúruna – og hvernig það sem við byggjum í kringum okkur mótar líðan okkar og lífsgæði. Nú geta íbúðir risið þar sem dagsbirtan er nánast aukaatriði – jafnvel með glugga bara til norðurs.

Við ræðum líka um mikilvægi fegurðar, menningu, vald, hraða samtímans – og áfram yfir í gervigreindina: hvert við erum að stefna, hvað gæti tapast á leiðinni, og hvað við þurfum að vernda – ekki bara í náttúrunni, heldur líka í okkur sjálfum.

 

✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨

  • 🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. biobu.is

  • 💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. happyhydrate.is

  • 🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. braudogco.is

  • 🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. greenfit.is

  • 🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. husaskjol.is

  • 🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins enn eitt árið í röð samkvæmt Maskínu - nú fimm ár í röð. hreyfing.is

  • 🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. netto.is

Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us