Episode Details

Back to Episodes
Hvað þarf að gerast til að Bitcoin fangi athygli markaðarins á ný?

Hvað þarf að gerast til að Bitcoin fangi athygli markaðarins á ný?

Season 1 Episode 104 Published 1 month ago
Description

Fremur tíðindalítið var á rafmyntamörkuðum síðastliðna viku og litlar hreyfingar voru á gengi helstu rafmynta. Stærstu tíðindin eru áframhaldandi stigmögnun í deilum Bandaríkjanna og Íran og virðist sem óhjákvæmilegt sé að til einhverra stríðsátaka komi. Mestur hluti þessa þáttar fór þó í samræður um þær gríðarlegu tækniframfarir sem hafa átt sér stað undanfarið á sviði gervigreindar og er sú tilgáta viðruð, og ekki í fyrsta sinn, að hér sé um að ræða eina helstu skýringu þess að rafmyntamarkaðurinn fær ekki mikla athygli hjá fjárfestum um þessar mundir; þeir eru einfaldlega of uppteknir af gervigreindarkapphlaupinu. Hlaðvarpsfélagarnir eru þó hvergi bangnir og eru sannfærðir um að Bitcoin og bálkakeðjur muni takast að skipa sér mikilvægan sess í breyttri framtíð.

Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us