Episode Details

Back to Episodes

Dr.Sigrún Þóra Sveinsdóttir sálfræðingur um hjartsláttarbreytileika (HRV) og áhrif hans á andlega seiglu, hugræna frammistöðu, viðbragðsflýti, vinnuþreytu og jákvæðar tilfinningar.

Episode 69 Published 8 months ago
Description

Í þessum þætti fáum við til okkar Dr. Sigrúnu Þóru Sveinsdóttur, sálfræðing og sérfræðing í lífeðlisfræðilegri sálfræði, og förum djúpt í HRV (Heart Rate Variability) – eitt áhugaverðasta mælitæki sem við höfum í dag til að skilja taugakerfið, streitu, endurheimt og jafnvægi. Rannsóknir Sigrúnar Þóru hafa m.a. skoðað tengsl HRV við andlega þrautseigju og hugræna frammistöðu, og í þættinum tengjum við saman líkamann og hugann á skýran og hagnýtan hátt.

Við ræðum:

  • Hvað er HRV (heart rate variability) og hvað er það í raun að mæla

  • Af hverju HRV tengist ósjálfráða taugakerfinu (sympatískt/parasympatískt)

  • Hvað hefur áhrif á HRV 

  • Hvað HRV getur sagt okkur um stöðu líkamans og okkur - andlega og líkamlega

  • Hvað HRV getur mögulega gefið vísbendingar um til lengri tíma (seiglu, streituþol, hugræna frammistöðu)

  • Hvað gerist í fari okkar þegar HRV batnar

  • Tengsl hjarta og heila: boðleiðir, vagus-taugin og samspil tilfinninga/hugsunar og lífeðlislegra þátta

  • Áhrif jákvæðrar hugsunar, öryggistilfinningar og þakklætis á taugakerfið og þar með HRV

  • Hvernig við getum bætt HRV í daglegu lífi 

  • Öndunaræfing / HRV-biofeedback: hvernig hún virkar og af hverju hún getur hækkað HRV

  • Gengur þetta í báðar áttir? (hugsun → líkami og líkami → hugarástand)

  • Hvað er “gott” og “vont” HRV: af hverju það er persónubundið og skiptir máli að bera sig saman við sjálfan sig

  • Er til hámarks HRV: hvað “hæsta mögulega” þýðir (raunverulega jafnvægi og sveigjanleiki frekar en að elta eina tölu)

  • Algeng mistök í HRV-túlkun og hvernig best er að lesa trend yfir tíma (ekki einstaka mælingu)

  • Hvað er resonance öndun?
  • Hvað er resonance lampi - og hvaða tæki eða öpp geta hjálpað okkur
  • Ræðum líka tilfinningasmitun - smitun innra ástands í nærliggjandi umhverfi

 

✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨

  • 🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. biobu.is

  • 💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. happyhydrate.is

  • 🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. braudogco.is

  • 🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. greenfit.is

  • 🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. husaskjol.is

  • 🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins enn eitt árið í röð samkvæmt Maskínu - nú fimm ár í röð. hreyfing.is

  • 🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. netto.is

 

   
Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us