Episode Details

Back to Episodes

Stofnandi Vivaldi íhugar að flýja ástandið í Bandaríkjunum

Episode 626 Published 7 months, 2 weeks ago
Description
Norsk-íslenski fjárfestirinn Jón Stephenson von Tetzhner íhugar að flytja frá Bandaríkjunum eftir að hafa búið þar í meira en áratug. Jón er tiltöluglega lítt þekktur á Íslandi þrátt fyrir að vera nokkuð stórtækur í fjárfestingum hér. Hann á meirihluta í símafyrirtækinu Hringdu, fasteignir á Eiðistorgi, hluti í mjólkurvinnslunni Örnu, tæknifyrirtækið Vivaldi sem rekur samnefndan vafra og hlut í bókunarfyrirtækinu Dohop. Jón er auk þess styrktaraðili íþróttafélagsins Gróttu á Seltjarnarnesi. Þetta helst ræðir við Jón um stjórnmálaástandið í Bandaríkjunum, af hverju hann íhugar að flytja frá landinu og áhyggjur hans af einokun bandarískra stórfyrirtækja á tæknimarkaði. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us