Episode Details

Back to Episodes

Bifrastarsagan: Hitafundur og 2.3 milljarða afskriftir

Episode 624 Published 7 months, 2 weeks ago
Description
Þremenningarnir sem voru hreinsaðir af meintum brotum á siðareglum Háskólans á Bifröst í síðustu viku hafa hótað að stefna skólanum fyrir dóm. Þau sendu háskólanum á Bifröst bréf þann 8. febrúar þar sem þau krefjast þess að fá upplýsingar um nafnlausu ábendinguna sem siðanefndarmálið gegn þeim byggir á. Miklar deilur hafa geisað í háskólanum á Bifröst síðastliðinn mánuð. Hitafundur var haldinn um stöðu skólans á skrifstofu hans í Borgartúni á fimmtudaginn. Enn er eru stríðandi fylkingar í skólanum þó Margrét Jónsdóttir Njarðvík hafi sagt starfi sínu lausu í byrjun vikunnar. Háskólinn á Bifröst hefur staðið í ströngu síðastliðin ár. Fjármögnunarlíkani skólans var breytt og kemur nær allur peningurinn í rekstrinum frá ríkinu núna. Þá hefur skólinn átt í erfiðleikum vegna hárra skulda við ríkisstofnunina HMS, arftaka Íbúðalánasjóðs. Þessar skuldir voru um 3 milljarðar króna. Skuldirnar voru að mestu leyti afskrifaðar en Bifröst greiddi hluta þeirra til baka með láni frá Arion banka. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us