Episode Details
Back to Episodes
Bítíð - 10.febrúar 2026
Episode 1845
Published 4 months, 3 weeks ago
Description
Bítíð á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari.
Ingibjörg Kjartansdóttir, verkefnisstjóri Menntavísindasviðs og Menntavísindastofnunar HÍ og Skúli Bragi Geirdal, sviðsstjóri hjá Netvís – Fjölmiðlanefnd, ræddu við okkur um niðurstöður úr landskönnuninni Börn og netmiðlar.
Skúli Ólafsson, sérfræðingur í leiðtogafræðum og sóknarprestur í Neskirkju og Sirrý Arnardóttir, stjórnendaþjálfari og fjölmiðlakona, fóru yfir þjónandi forystu.
Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins og Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar, ræddu um misvægi atkvæða á landinu.
Björn Berg Gunnarsson, fjármálaráðgjafi svaraði alls kyns spurningum um starfslok og lífeyri á mannamáli.